Hver er ég?
Nafn: Supriya Sunneva KolandaveluÉg er búsett í Köben og stunda nám við Háskóla Hróarskeldu í hugvísindum.
Í 7 ár barðist ég við átröskun, en er nú á góðum batavegi. Þegar ég opnaði Uppleið langaði mig til þess að deila minni reynslu og leyfa lesendum að fylgjast með mér í minni meðferð. Ég var harðákveðin frá fyrsta degi að sigrast á sjúkdómnum, en ég notaði bloggið til þess að peppa mig áfram. Skrifin gefa mér mjög mikið og var það eina sem virkaði til þess að koma eyrðinni yfir mig. Ég vonaðist einnig til þess að mín reynsla yrði til þess að gefa öðru fólki í sömu sporum von, um líf eftir átröskun.
Ég fór í meðferð í Ágúst síðastliðnum og byrjaði þá baráttuna við djöflana sem höfðu troðið sér veg inn í minn persónuleika. Ég lærði að aðskilja mig frá sjúkdómnum og í raun lifa upp á nýtt. Ég fékk hjálp við að takast á við fortíðina sem að hafði skilið eftir sig nokkur djúp sár og voru í raun grundvöllurinn fyrir því að ég þróaði með mér þennan sjúkdóm. Ferlið tók tár, svita og blóð, en var þess virði og nú horfi ég björtum augum til framtíðar, laus við átröskun.
Ég hafði í mörg ár skammast mín fyrir ástandið sem ég var föst í, of hrædd til þess að sleppa tökunum eða segja nokkrum manni frá vandamálinu. Mér hefur fundist umræðan í samfélaginu einkennast af fordómum og fáfræði í kring um sjúkdóminn, og markmið mitt með Uppleið var meðal annars það að taka “tabú” viðbótina alfarið af átröskun. Sýna að átröskun er aðeins enn ein leiðin til þess að takast/takast ekki á við vandamál lífsins, og oft ekkert nema flótti frá veruleikanum. Geðsjúkdómur sem hefur verið litaður ljótum litum, þar sem sjúklingurinn skammast sín of mikið til þess að viðurkenna vandamálið og leita sér hjálpar. En fyrst og fremst vildi ég deila minni reynslu og þeim leiðum sem ég lærði til þess að reka púkana í burtu fyrir fullt og allt.
Það að hoppa út í djúpu laugina með átröskunina mína, leyfa heiminum að sjá mig eins og ég raunverulega er, og hætta að fela mig var stórt skref, því þetta hafði verið mitt ljóta leyndarmál í mörg ár. Núna stend ég bein í baki og skammast mín ekki lengur.
Ég er nýbyrjuð í háskóla þar sem ég læri mannfræði og stefni á að taka sálfræði/fíkniráðgjafa sem sérsvið. Ég hef áhuga á að vinna með fólki í framtíðinni og vonandi nýta mína reynslu til þess að láta gott af mér leiða.
Framtíðarmarkmið mín með Uppleið er að byggja upp stuðnings og upplýsingasíðu um átröskun, fyrir sjúklinga, aðstandendur og þá sem hafa áhuga á að kynna sér viðfangsefnið. Ég vil byggja upp grundvöll fyrir sjúklinga til þess að leita vonar og huggunar. Þar sem fólk hefur tækifæri til þess að tjá sig, sjá aðra í sömu sporum og styrkjast í baráttu sinni við sjúkdóminn. Ég vil einnig auka jákvæða umræðu í kring um sjúkdóminn í samfélaginu okkar, þar sem við getum tekið höndum saman og hjálpast að við að styðja við bakið á fólkinu okkar.
Með bestu kveðju,
Supriya
Hafa samband:
email: supriyakolandavelu@gmail.com
Sími: (0045) 3176 3656

Gangi þér vel:)
Æðislegt blogg hjá þér!
Gangi þér rosalega vel með áframhaldið.
kv Brynja:)
Mer finnst þetta frábært hjá þér það sem þú ert að gera, matt vera stolt af þer.
Gangi þér vel
Kv Inga
Frábært blogg hjá þér.
Ég tek ofan fyrir þér.
Gangi þér vel.
kv. Sandra
Rosalega ertu ótrúlega falleg !!! ég dáist af útlitinu þínu og barnið þitt er yndislegt, þið eruð mjög lík
elska hárlitinn ykkar;)
Mjög vel skrifað blogg og frábært að sjá þig taka þetta svona eins og þú gerir. Skrifin hjálpa pottþétt, ekki bara þér, heldur þeim sem lesa
Heimur átröskunar er hrikalegur
Ég er sammála þér með skömmina……..ég barðist við minn sjúkdóm mjög, mjög lengi, eigin fordóma, annarra fordóma. Ennþá eru fordómar. Ég er ennþá að berjast við hugsanir annað slagið.
Gangi þér ofsalega vel í þessu.
Kv. Berglind
Mikið ertu ótrúlega falleg. Gangi þér svakalega vel. Þetta er barátta en svo sannarlega þess virði.
Rosalega ertu dugleg. Gangi þér rosalega vel.
Frábært framtak!
Bkv Salóme
hæhæ þú ert alveg ótrúlega dugleg og falleg. Verður gott að geta fylgst með þessu bloggi í framtíðinni. Sjálf þekki ég ekki átröskun sem betur fer,, en á 2 vini sem glíma við þetta og öllu sem þessu fylgir. Önnur þeirra benti mér á þetta blogg og sagðist sjá sína líðan hérna. Keep up the good work !!
Frábært hjá þér!